Lagnafóðrun

FRÁRENNSLISLAGNIR

Frárennslislagnir húsa

Góðar frárennslislagnir skipta verulegu máli varðandi endingartíma húsa og viðhaldskostnað. Í upphafi er mikilvægt að vanda vel til verka og ganga vel frá frárennsli.

Lagnafóðrun annast lagnir á frárennsli fyrir nýbyggingar en einnig viðhald og viðgerðir á frárennslisrörum eldri húsa.

 

Ástandsskoðun er lykilatriði 

Almennt er ekki hugsað út í frárennslislagnir nema í upphafi nýbygginga og svo ekki fyrr en vandamál koma upp. Það er góð regla að láta framkvæmda ástandsskoðun frárennslislagna við kaup á húsnæði hvort sem það er til einkanota eða fyrir atvinnustarfsemi.

 

Mikilvægt að þekkja stöðu frárennslisröra við kaup á fasteign

Frárennslislagnir geta haft mikil áhrif á sölu fasteigna. Ótraustar frárennslislagnir geta leitt til verulegs tjóns og mikilla óþæginda. Lagnafóðrun býður myndun frárennslisröra og metur ástand lagna. Við veitum þér ráðgjöf hvað er skynsamlegt að gera út frá því sem myndataka leiðir í ljós. .

 

Reglubundið eftirlit með frárennsli

Ekki bíða með að kanna ástand á frárennsli ef húsið er eldra en 10 ára. Það er gott að láta ástandsskoða skólplagnir við kaup eða ekki síðar en 15 árum eftir að hús er byggt.

Eftir að hús nær 15 ára aldri þá mælum við með reglubundnu eftirliti ekki sjaldnar en á 5 ára fresti.

 

Frárennslisrör hafa sinn endingartíma

Tjón af völdum Frárennslislagna er með stærri tjónum sem fasteignaeigendur lenda í og hafa yfirleitt í för með sér mikið rask og óþægindi. Með því að vanda vel til verka í upphafi og grípa nægilega snemma inn í bilanir á frárennslisrörum má laga þær með hagkvæmum hætti í samanburði við að endurnýja lagnir. En með fóðrun eldri frárennslislagna má spara verulegar fjárhæðir og lágmarka óþægindi.

 

Endurnýjaðu drenlagnir á sama tíma og frárennslislagnir

Þegar farið er af stað í endurnýjun eða viðgerðir á frárennslislögnum er mikilvægt að nýta tækifærið á meðan framkvæmdum stendur yfir og yfirfara drenlagnir.

 

Fáðu fría ástandsskoðun fyrir skólplagnir

Skólplagnir frá heimilum og fyrirtækjum tengjast stofnlögn sveitarfélags og þarf að tryggja að lagnirnar séu opnar og með góðu rennsli frá upphafi til enda. Lagnafóðrun býður fría ástandsskoðun til að meta þessa þætti þar sem aðstæður og ástand lagna er metið.

 

Föst tilboð í frárennslislagnir

Ef nauðsynlegt er að fara út í frelkari aðgerðir gerir Lagnafóðrun föst verðtilboð í slík verk ásamt því að fá tilskilin leyfi þar sem það á við. Oft á tíðum er hægt að lengja líftíma lagna með fóðrun lagna en í ákveðnum tilfellum getur þurft að leggja nýjar lagnir.

 

Fóðrun á skólplögnum

Fóðrun á lögnum er þróuð aðferð til að lengja líftíma lagna. Það sem skiptir mestu máli er að nota réttu endingargóðu efnin í rörin og rétta tækni sem unnin er af fagmönnum. Þegar lagnir eru sprungnar eða slitnar getur verið hagkvæmast að beita lagnafóðrun. Fyrsta skrefið er að komast inn á lagnir en næst er lögnin sem á að laga hreinsuð. Því næst er búið til nýtt plaströr inni í eldri rörum úr þaulprófuðum og vottuðum plastefnum.

 

Lágmarks óþægindi stuttur verktími

Viðgerðir á lögnum fylgir oft mikið rask og óþægindi. Lagnafóðrun lágmarkar verktíma og rask er brot af því sem endurnýjun lagna kallar á. Algengur verktími er 2-3 dagar en fer þó eftir stærð verkefna.

 

Lagning frárennslisröra

Nýlagnir á frárennsli í og við nýbyggingar eða eldri hús kalla á vandvirkni og fagmennsku. Mistök við lagningu á frárennslisröra og slakur frágangur enda yfirleitt í kostnaðarsömum tjónum

Hjá Lagnafóðrun starfa fagmenn með margra ára reynslu af alhliða pípulögnum.

Hafðu samband ef þig vantar aðstoð við frárennsli eða aðra pípulagningavinnu.